What is Nostr?
eirikur /
npub1m8k…dr5w
2024-09-17 08:24:29

eirikur on Nostr: Peningur er birtingarmynd tíma okkar og orku. Í hvert sinn sem nýr peningur er ...

Peningur er birtingarmynd tíma okkar og orku.

Í hvert sinn sem nýr peningur er prentaður, er ekki aðeins verið að rýra kaupmátt okkar, heldur einnig líf okkar. Við eyðum tíma okkar og orku á þessari plánetu til að sinna okkar vinnu, og í staðin fáum við krónur fyrir. En í dag eru þær krónur sem við höfum unnið okkur inn minna virði en þær voru áður fyrr, sem þýðir að við erum í raun minna virði. En það að hugsa peninga sem leið til að fanga tíma okkar og orku er ákveðin vitundarvakning, því peningur er meira en bara það sem stjórnvöld þvinga okkur til að nota og borga skatta okkar með.

Ef ríkið getur heimilað peningaprentun og gengisfellingu á sínum eigin gjaldmiðili, að þá er um leið verið að rýra gildi tíma okkar og orku. Þegar ríkið tekur lán til að fjármagna eigin starfsemi er það í raun að búa til einskonar tímavél, því það tekur lán af tíma og orku framtíðarinnar, af allri þjóðinni, og segir: „Við borgum þetta seinna.“ Það er gjörsamlega súrealískt.
Author Public Key
npub1m8kwcukyps63kwjklfdpkf45k3ggc6vyyvyhj0szj70xnq52xcwsrpdr5w